VEISLUSALUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
Skálinn Gufunesi starfrækir öfluga veisluþjónustu sem getur séð um veitingar í veislur stórar sem smáar
Skálinn Gufunesi er alhliða veitingasalur/veislueldhús sem rekinn af reyndu fagfólki með áratuga reynslu í veitinga- og upplifunargeiranum.
Í Skálanum er rúmgott, vel búið og skipulagt framleiðslueldhús sem getur tekið að sér allskonar veislur og matartengdverkefni - stór og smá - allt frá litlum pinnaveislum til stórra margrétta veislu.
Í Skálanum Gufunesi er auk þess starfrækt framleiðslueldhús fyrir aðra veitingastaði - en eigendur Skálans reka nokkra veitingastaði auk Skálans - bæði á höfuðborgarsvæðinu og í mathöllinni á Selfossi.
Þeirra þekktast er Menam - en það er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur starfað við góðan orðstýr frá árinu 1999 og er enn í eigu sömu fjölskyldunnar.
Tillögur að pinnamat
Pinnamatur
Pinnamatur (Lágmark 30 manns)
Tapassnittur
- Parmaskinka með fersku pestó og melónu
- Nauta carpaccio með tapenade og fetaosti
- Tómatur, basil og mozzarella ostur á hvítlauksrist
- Ostasalat, beikon og ber
- Grillað grænmeti og BBQ sósa
650 kr
Grillspjót
- Chili kjúklingaspjót með middle-east sósu
- Nauta spjót með kórander, myntu og lime
- Lambafille í hvítlauk og kornasinnepi á spjóti
- Grillaðar risarækjur á spjóti með hvítlauks aioli
650 kr
Smáréttir
- Andaconfit á vöfflu með eplasultu og wasabi majo
- Nauta „Carpaccio“ með sesamostakremi og rauðlaukssultu
- Mini hamborgari með roast beef og béarnaise sósu
- Humarhamborgarar með hvítlaukssósu
- Pulled pork taco með BBQ sósu og kryddjurtum
- Bleikju taco með steinseljurótarmauki og kóriander
- Gæsalifrar „mousse“ með sveppum
650 kr
Smáréttir 2
- Sveppa risotto bollur með spicy majo
- Mini pizzur með skinku
- Camenbert bitar djúpsteiktir
- Mozzarella stangir djúpsteiktar
- Ostafylltir jalepenó koddar
- Butterfly kókosrækja með chilisósu
450 kr
Sætt
- Súkkulaðimús með hindberjum í glasi
- Súkkulaði brownie með vanillukremi
- Créme brulé í glasi
550 kr
Sætt 2
- Súkkulaðihúðuð jarðarber
- Vatnsdeigsbollur með vanillukremi
- Kókostoppar
- Makkarónukökur- margir litir
350 kr
Heitt
- Steiktar kjötbollur með BBQ sósu
- Beikonvafðar coktail pylsur
- Kjúklingavængir „Hot wings“
650 kr
Matseðill 1
5 bitar á mann
Tilvalinn fyrir styttri móttökur
- Tómatur, basil og mozzarella ostur á hvítlauksrist
- Grillaðar risarækjur á spjóti með hvítlauks aioli
- Mini hamborgari með roast beef og béarnaise sósu
- Pulled pork taco með BBQ sósu og kryddjurtum
- Vatnsdeigsbollur með vanillukremi
2.890 kr
á mann
Matseðill 2
6 bitar á mann
Tilvalinn fyrir styttri móttökur
- Snitta með parmaskinku, fersku pestó og melónu
- Chili kjúklingaspjót með middle-east sósu
- Nauta „Carpaccio“ með sesamostakremi og rauðlaukssultu
- Humarhamborgarar með hvítlaukssósu
- Butterfly kókosrækja með chilisósu
- Súkkulaði brownie með vanillukremi
3.390 kr
á mann
Matseðill 3
11 bitar á mann
Tilvalinn í lengri móttökur eða sem kvöldverður
- Snitta með parmaskinku, fersku pestó og melónu
- Chili kjúklingaspjót með middle-east sósu
- Nauta „Carpaccio“ með sesamostakremi og rauðlaukssultu
- Humarhamborgarar með hvítlaukssósu
- Butterfly kókosrækja með chilisósu
- Pulled pork taco með BBQ sósu og kryddjurtum
- Lambafille í hvítlauk og kornasinnepi á spjóti
- Mini hamborgari með roast beef og béarnaise sósu
- Camenbert bitar djúpsteiktir
- Súkkulaðihúðuð jarðarber
- Súkkulaði brownie með vanillukremi
5.890 kr
á mann
Matseðill 4
Ítölsk Focaccia Romana veisla
Tilvalin í lengri móttökur eða sem kvöldverður
- Focaccia brauð með parmaskinku, ruccola og mozzarellaosti
- Focaccia brauð með grilluðu grænmeti og pestó
- Focaccia brauð með kálfakjöti, pikkluðum lauk og mascarpone osti
- Focaccia brauð með ítalskri skinku, eplum, ananas og tapenade
- Focaccia brauð með ítölsku túnfisksalati
- Súkkulaði brownie með vanillukremi
4.900 kr
á mann
Stærð og uppsetning
Salurinn er rúmgóður og sveigjanlegur og hægt að aðlaga uppsetningu hans að mismunandi tegundum viðburða. Hann tekur á móti 20 - 200 gestum í sitjandi veislum og allt að 300 gestum í standandi viðburðum með möguleika á fjölbreyttri uppsetningu eftir tilefni.
Dansgólf og færanlegt svið
Hægt er að setja upp dansgólf og færanlegt svið sem gerir salinn að spennandi og sveigjanlegum vettvangi meðal annars fyrir tónlist, uppistand og aðra sviðsviðburði, allt eftir tilefni hverju sinni.
Leigist með eða án veitinga
Salurinn er er leigður út með eða án veitinga, allt eftir óskum hvers og eins. Tekið er á móti gestum í rúmgóðu anddyri með fatahengi. Þaðan er gegnið inn í salinn og hægt að hafa bar eða móttöku við innganginn í salinn. Einnig er hægt að hafa færanlegan bar fyrir veitingar sem auðveldar framreiðslu á vínveitingum og öðrum drykkjum.
Aðkoma og bílastæði
Aðkoma er mjög góð og næg bílastæði eru beint fyrir framan salinn , sem gerir gestum auðvelt að komast að og frá viðburðum.
Anddyri og fatahengi
Tekið er á móti gestum í rúmgóðu anddyri með fatahengi. Þaðan er gengið inn í salinn og hægt að hafa bar eða móttöku við innganginn í salinn. Einnig er hægt að hafa færanlegan bar fyrir veitingar sem auðveldar framreiðslu á vínveitingum og öðrum drykkjum.
Veisluþjónusta
Skálinn Gufunesi starfrækir öfluga veisluþjónustu sem getur séð um veitingar í veislur stórar sem smáar.
