VEISLUSALUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
Skálinn Gufunesi er kjörinn vettvangur fyrir afmæli, árshátíðir, böll, tónleika, menningarviðburði og aðrar samkomur
Stærð og uppsetning
Salurinn er rúmgóður og sveigjanlegur og hægt að aðlaga uppsetningu hans að mismunandi tegundum viðburða. Hann tekur á móti 20 - 200 gestum í sitjandi veislum og allt að 300 gestum í standandi viðburðum með möguleika á fjölbreyttri uppsetningu eftir tilefni.
Dansgólf og færanlegt svið
Hægt er að setja upp dansgólf og færanlegt svið sem gerir salinn að spennandi og sveigjanlegum vettvangi meðal annars fyrir tónlist, uppistand og aðra sviðsviðburði, allt eftir tilefni hverju sinni.
Leigist með eða án veitinga
Salurinn er er leigður út með eða án veitinga, allt eftir óskum hvers og eins. Tekið er á móti gestum í rúmgóðu anddyri með fatahengi. Þaðan er gegnið inn í salinn og hægt að hafa bar eða móttöku við innganginn í salinn. Einnig er hægt að hafa færanlegan bar fyrir veitingar sem auðveldar framreiðslu á vínveitingum og öðrum drykkjum.
Aðkoma og bílastæði
Aðkoma er mjög góð og næg bílastæði eru beint fyrir framan salinn , sem gerir gestum auðvelt að komast að og frá viðburðum.
Anddyri og fatahengi
Tekið er á móti gestum í rúmgóðu anddyri með fatahengi. Þaðan er gengið inn í salinn og hægt að hafa bar eða móttöku við innganginn í salinn. Einnig er hægt að hafa færanlegan bar fyrir veitingar sem auðveldar framreiðslu á vínveitingum og öðrum drykkjum.
Veisluþjónusta
Skálinn Gufunesi starfrækir öfluga veisluþjónustu sem getur séð um veitingar í veislur stórar sem smáar.
